Form og hlutföll skipta miklu máli í hönnun. Í þessu tilfelli var reynt að skapa stílhreint eldhús, þar sem nánast allt er innfellt. Við enda eyjunnar er eldhúsborðið þar sem stórir, síðir gluggar hleypa inn gróðri og birtu. (Hannað 2011)
Barskápur er hér felldur inn í vegg í borðstofu. Reyklitaður spegill í botni skápsins spilar á rýmið og hjálpar til við lýsinguna. (Hannað 2015)
Það er alltaf gaman þegar gestasnyrtingar hjá fyrirtækjum eru aðlaðandi og koma á óvart. Hér er leikið með spegla og lýsingu sem bæði stækka og "rugla" aðeins í rýminu.
Þetta hús hannaði ég fyrst 2009 og svo aftur 2017 fyrir nýja eigendur. Í seinni umferðinni var m.a. lögð áhersla á að stofan yrði í góðum tengslum við eldhúsið og væri fjölskylduvænt samverurými.