Þegar unnið er með íbúðir á pöllum fylgja því ýmsar áskoranir í hönnun. Ef lofthæðin er mikil þarf að sjálfsögðu að gæta vel að hljóðvistinni. Þá þarf að vinna út frá agaðri grunnmynd og huga vel að staðsetningu ljósa, húsgagna og öðrum fylgihlutum svo að
Barskápur er hér felldur inn í vegg í borðstofu. Reyklitaður spegill í botni skápsins spilar á rýmið og hjálpar til við lýsinguna. (Hannað 2015)
Það er alltaf gaman þegar gestasnyrtingar hjá fyrirtækjum eru aðlaðandi og koma á óvart. Hér er leikið með spegla og lýsingu sem bæði stækka og "rugla" aðeins í rýminu.
Þetta hús hannaði ég fyrst 2009 og svo aftur 2017 fyrir nýja eigendur. Í seinni umferðinni var m.a. lögð áhersla á að stofan yrði í góðum tengslum við eldhúsið og væri fjölskylduvænt samverurými.