Fékk það skemmtilega verkefni að breyta illa nýttu rými hjá Hreyfingu spa í notalegan slökunarreit. Reyklitaðir speglar stækka rýmið og viðarklæðning gefur hlýleika og hjálpar til við að bæta hljóðvistina. Vönduð lýsing og húsgögn setja svo punktinn yfir
Barskápur er hér felldur inn í vegg í borðstofu. Reyklitaður spegill í botni skápsins spilar á rýmið og hjálpar til við lýsinguna. (Hannað 2015)
Það er alltaf gaman þegar gestasnyrtingar hjá fyrirtækjum eru aðlaðandi og koma á óvart. Hér er leikið með spegla og lýsingu sem bæði stækka og "rugla" aðeins í rýminu.
Þetta hús hannaði ég fyrst 2009 og svo aftur 2017 fyrir nýja eigendur. Í seinni umferðinni var m.a. lögð áhersla á að stofan yrði í góðum tengslum við eldhúsið og væri fjölskylduvænt samverurými.