Þótt við séum blessunarlega nokkuð laus við Covid þá er samt gott að hafa góða vinnuaðstöðu heima. Þessi aðstaða er í miðju alrými hússins en samt nokkuð falin og fellur vel inn í rýmið. Þegar ekki er verið að nota aðstöðuna sjást bara fallegar hillur en
Barskápur er hér felldur inn í vegg í borðstofu. Reyklitaður spegill í botni skápsins spilar á rýmið og hjálpar til við lýsinguna. (Hannað 2015)
Það er alltaf gaman þegar gestasnyrtingar hjá fyrirtækjum eru aðlaðandi og koma á óvart. Hér er leikið með spegla og lýsingu sem bæði stækka og "rugla" aðeins í rýminu.
Þetta hús hannaði ég fyrst 2009 og svo aftur 2017 fyrir nýja eigendur. Í seinni umferðinni var m.a. lögð áhersla á að stofan yrði í góðum tengslum við eldhúsið og væri fjölskylduvænt samverurými.