Ef eitthvað kemst nálægt því að vera drauma litapalletta hjá mér þá er þetta hún. Mildir litatónar sem spila saman í öllu efnisvali og mynda eina heild. Um leið mætir harður marmarinn í eyjunni mýktinni í viðarinnréttingum, gólfefni og gluggatjöldum. (Han
Barskápur er hér felldur inn í vegg í borðstofu. Reyklitaður spegill í botni skápsins spilar á rýmið og hjálpar til við lýsinguna. (Hannað 2015)
Það er alltaf gaman þegar gestasnyrtingar hjá fyrirtækjum eru aðlaðandi og koma á óvart. Hér er leikið með spegla og lýsingu sem bæði stækka og "rugla" aðeins í rýminu.
Þetta hús hannaði ég fyrst 2009 og svo aftur 2017 fyrir nýja eigendur. Í seinni umferðinni var m.a. lögð áhersla á að stofan yrði í góðum tengslum við eldhúsið og væri fjölskylduvænt samverurými.