Þegar baðherbergi eru stór og rúmgóð leitast ég við að skipta þeim upp í svæði. Hér eru sturta og salerni stúkuð af með veggjum, en kringum handlaugarnar er opið og meira samverurými. Einnig var settur upp glerveggur til að afmarka slökunar- og teygjusvæð
by rutkaradottir 3 years ago | via Instagram

Barskápur er hér felldur inn í vegg í borðstofu. Reyklitaður spegill í botni skápsins spilar á rýmið og hjálpar til við lýsinguna. (Hannað 2015)
by rutkaradottir 4 years ago | via Instagram

Það er alltaf gaman þegar gestasnyrtingar hjá fyrirtækjum eru aðlaðandi og koma á óvart. Hér er leikið með spegla og lýsingu sem bæði stækka og "rugla" aðeins í rýminu.
by rutkaradottir 4 years ago | via Instagram

Þetta hús hannaði ég fyrst 2009 og svo aftur 2017 fyrir nýja eigendur. Í seinni umferðinni var m.a. lögð áhersla á að stofan yrði í góðum tengslum við eldhúsið og væri fjölskylduvænt samverurými.
by rutkaradottir 4 years ago | via Instagram