Ráðist var í miklar endurbætur á þessu einbýli þar sem ég fékk mikið svigrúm í hönnuninni og frelsi til að velja húsgögn og aðra húsmuni. Lagt var upp með að skapa rólegt og afslappað umhverfi með mildum og náttúrulegum efnum. (Hannað 2022)
by rutkaradottir 11 months ago | via Instagram

Barskápur er hér felldur inn í vegg í borðstofu. Reyklitaður spegill í botni skápsins spilar á rýmið og hjálpar til við lýsinguna. (Hannað 2015)
by rutkaradottir 4 years ago | via Instagram

Það er alltaf gaman þegar gestasnyrtingar hjá fyrirtækjum eru aðlaðandi og koma á óvart. Hér er leikið með spegla og lýsingu sem bæði stækka og "rugla" aðeins í rýminu.
by rutkaradottir 4 years ago | via Instagram

Þetta hús hannaði ég fyrst 2009 og svo aftur 2017 fyrir nýja eigendur. Í seinni umferðinni var m.a. lögð áhersla á að stofan yrði í góðum tengslum við eldhúsið og væri fjölskylduvænt samverurými.
by rutkaradottir 4 years ago | via Instagram