Heimili eru í stöðugri þróun og breytast með smekk og tíðaranda. Ég hef búið í sama húsinu í rúm 20 ár og hér má sjá hvernig eldhúsið og borðstofan hafa tekið breytingum á þeim tíma. Elsta myndin er frá árinu 2002 og sú nýjasta (og fremsta) er frá 2018. G
Barskápur er hér felldur inn í vegg í borðstofu. Reyklitaður spegill í botni skápsins spilar á rýmið og hjálpar til við lýsinguna. (Hannað 2015)
Það er alltaf gaman þegar gestasnyrtingar hjá fyrirtækjum eru aðlaðandi og koma á óvart. Hér er leikið með spegla og lýsingu sem bæði stækka og "rugla" aðeins í rýminu.
Þetta hús hannaði ég fyrst 2009 og svo aftur 2017 fyrir nýja eigendur. Í seinni umferðinni var m.a. lögð áhersla á að stofan yrði í góðum tengslum við eldhúsið og væri fjölskylduvænt samverurými.