Gestasnyrting inn af forstofu þar sem þess er gætt að salernið sjálft blasi ekki við gestum þegar gengið er inn. Því miður vill þessi mikilvæga regla oft gleymast bæði við hönnun híbýla og opinberra rýma. (Hannað 2020)
by rutkaradottir
·
4 years ago
·
via Instagram
Barskápur er hér felldur inn í vegg í borðstofu. Reyklitaður spegill í botni skápsins spilar á rýmið og hjálpar til við lýsinguna. (Hannað 2015)
by rutkaradottir
·
5 years ago
·
via Instagram
Það er alltaf gaman þegar gestasnyrtingar hjá fyrirtækjum eru aðlaðandi og koma á óvart. Hér er leikið með spegla og lýsingu sem bæði stækka og "rugla" aðeins í rýminu.
by rutkaradottir
·
5 years ago
·
via Instagram
Þetta hús hannaði ég fyrst 2009 og svo aftur 2017 fyrir nýja eigendur. Í seinni umferðinni var m.a. lögð áhersla á að stofan yrði í góðum tengslum við eldhúsið og væri fjölskylduvænt samverurými.
by rutkaradottir
·
5 years ago
·
via Instagram