Ég hef alltaf reynt að hafa að leiðarljósi í minni hönnun að hún eldist vel bæði hvað varðar form og efnisval. Þá finnst mér einnig mikilvægt að grunnskipulagið og fastar innréttingar séu þannig að auðvelt sé að breyta stemningunni og yfirbragðinu með lit
Barskápur er hér felldur inn í vegg í borðstofu. Reyklitaður spegill í botni skápsins spilar á rýmið og hjálpar til við lýsinguna. (Hannað 2015)
Það er alltaf gaman þegar gestasnyrtingar hjá fyrirtækjum eru aðlaðandi og koma á óvart. Hér er leikið með spegla og lýsingu sem bæði stækka og "rugla" aðeins í rýminu.
Þetta hús hannaði ég fyrst 2009 og svo aftur 2017 fyrir nýja eigendur. Í seinni umferðinni var m.a. lögð áhersla á að stofan yrði í góðum tengslum við eldhúsið og væri fjölskylduvænt samverurými.